Mercedes-Benz eCitaro fyrir utan byggingu

eCitaro

Framtíð almenningssamgangna

  • 100% rafmagn
  • Allt að 600 km drægni
  • Háþróuð öryggiskerfi
  • Sveigjanlegar hleðslulausnir
  • Öflug rafhlöðutækni
  • Rúmgott innanrými

Mercedes-Benz eCitaro er alrafmagnaður borgarstrætisvagn sem setur ný viðmið í sjálfbærum almenningssamgöngum.

Með drægni allt að 600 km, háþróaðri rafhlöðutækni og öflugum öryggiskerfum býður eCitaro upp á áreiðanlega og hagkvæma lausn fyrir daglegan akstur. Rúmgott innanrými, hljóðlátur akstur og fjölbreyttar útfærslur tryggja þægindi fyrir bæði farþega og ökumenn.

  • Allt að 600 km drægni - Nýjasta NMC4 rafhlöðutækni tryggir drægni allt að 600 km án endurhleðslu, eftir útfærslu
  • Allt að 146 farþegar- Rými fyrir allt að 88 farþega í hefðbundinni útfærslu og 146 í liðvagninum eCitaro G
  • Öflug rafhlöðutækni - Rafhlöðugeta allt að 666 kWh í eCitaro og 777 kWh í eCitaro G
  • Háþróuð öryggiskerfi - Öryggistækni á borð við Sideguard Assist 2 og Preventive Brake Assist 2 eykur öryggi í umferðinni
  • Sveigjanlegar hleðslulausnir - Styður allt að 150 kW CCS hleðslu og allt að 300 kW hleðslu með straumsafnara
  • Þægindi fyrir alla - Lágt gólf auðveldar aðgengi, á meðan rúmgott innanrými og hljóðlátur akstur gera ferðina þægilegri
Senda fyrirspurn um eCitaro
Mercedes-Benz eCitaro innanrými sætisaðsaða, lengri vagn
Mercedes-Benz eCitaro innanrými, aðstaða fyrir hjólastóla og vagna
Mercedes-Benz eCitaro nægt innanrými og þægindi
Mercedes-Benz eCitaro ökumannsaðstaða
Mercedes-Benz eCitaro á ferðinni í fallegu veðri

Viltu vita meira um eCitaro?

Þú getur nálgast ítarlegri upplýsingar um eCitaro á vefsíðu Mercedes-Benz.

Mercedes-Benz eCitaro á ferðinni í fallegri borg

Ertu með spurningar varðandi eCitaro? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

Ásgrímur Helgi Einarsson

Forstöðumaður
sölusviðs

Sigurður Einar Steinsson

Sölustjóri hópferðabíla