eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll

eIntouro

Alrafmagnaður og fjölhæfur

  • 100% rafmagn
  • Allt að 500 km drægni
  • Allt að 414 kWh rafhlöðugeta
  • Allt að 63 sæti

Alrafmagnaður. Fjölhæfur. Tilbúinn í dagleg verkefni.

Mercedes-Benz eIntouro er alrafmagnaður millibæjarvagn sem sameinar fjölhæfni hins þekkta Intouro við nútímalega rafdrifstækni. Með drægni allt að 500 km, sveigjanlegum rafhlöðuvalkostum og fjölbreyttum útfærslum hentar eIntouro jafnt fyrir áætlunarakstur, skólaakstur, starfsmannaferðir og styttri hópferðir.

Allt að 414 kWh rafhlöðugeta með tveimur 207 kWh LFP rafhlöðupökkum. Einnig er hægt að velja einn rafhlöðupakka eftir notkun og þörfum.

Tvær lengdir og allt að 63 sæti. eIntouro er 12,18 m og býður allt að 55 sæti, en eIntouro M er 13,09 m og getur tekið allt að 63 farþega eftir útfærslu.

Öryggi í fyrirrúmi

eIntouro er fáanlegur með fjölbreyttum öryggis- og aðstoðarkerfum, þar á meðal Sideguard Assist 2, Frontguard Assist, Attention Assist 2, Active Brake Assist 6 Plus og 360° myndavélakerfi sem aukabúnað. Kerfin eru hönnuð til að styðja ökumann við að greina hættur fyrr og draga úr líkum á slysum innan þeirra kerfismarka sem gilda.

Senda fyrirspurn um eIntouro
eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll séð að utan stærri útfærsla
eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll séð að utan minni útfærsla
eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll ökumannsrými
eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll séð að innan
eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll séð að innan

Nánari upplýsingar á vef Mercedes-Benz

Nánari upplýsingar um eIntouro má nálgast á vef Mercedes-Benz Bus.

eIntouro frá Mercedes-Benz. Rafmagnaður hópferðabíll á ferðinni

Viltu vita meira um eIntouro? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

Ásgrímur Helgi Einarsson

Forstöðumaður
sölusviðs

Sigurður Einar Steinsson

Sölustjóri hópferðabíla