Framrúðan er lykilöryggisþáttur í hverju ökutæki og órjúfanlegur hluti af burðarvirki þess.
Við notum eingöngu framrúður, lím og vinnuaðferðir sem eru viðurkenndar af framleiðendum og tryggja hámarks gæði, öryggi og endingu.
Í atvinnubílum er hlutverk framrúðunnar sérstaklega mikilvægt. Hún styrkir burðarvirki ökutækisins og er forsenda þess að öryggiskerfi virki sem skyldi. Heil og rétt ísett framrúða tryggir ökumanni skýra og örugga sýn við allar aðstæður.
Landfari er viðurkenndur þjónustuaðili við viðgerðir og skipti á framrúðum.
Við erum með samning við eftirtalin tryggingafélög:
- TM
- VÍS
- Sjóvá
- Vörð
Ef ökutæki er með framrúðutryggingu tekur tryggingafélagið þátt í kostnaði við viðgerð eða skipti samkvæmt skilmálum viðkomandi tryggingafélags.
Framrúðutrygging ökutækis nær yfir kostnað þegar skipta þarf um rúðu. Eigandi greiðir þá einungis eigin áhættu í hverju tjóni. Þegar gert er við framrúðu þá er kostnaður eiganda enginn.



