BM Vallá hefur fest kaup á fimm nýjum rafknúnum Mercedes-Benz eActros 600 vörubílum sem lið í áframhaldandi vegferð fyrirtækisins í átt að aukinni sjálfbærni og minni losun í rekstri. Með fjárfestingunni styrkir fyrirtækið innviði sína fyrir umhverfisvæna flutninga og dregur úr kolefnisspori starfseminnar.
Rafvæðing flutninga verður stór þáttur í umhverfisstefnu BM Vallár, þar sem lögð er áhersla á að draga úr losun og nýta nýjustu tækni til að bæta rekstur og umhverfisárangur. Nýju bílarnir munu gegna mikilvægu hlutverki í daglegum flutningum fyrirtækisins.
Mercedes-Benz eActros 600 er hannaður með flutninga í huga og býður upp á allt að um 500 km drægni á einni hleðslu. Bíllinn nýtir nýjustu rafhlöðu- og orkustýringartækni, sem gerir hann vel til þess fallinn að mæta kröfum nútíma flutninga – jafnvel við krefjandi íslenskar aðstæður.


