10. júlí 2026

Landfari afhendir Magic Iceland Travel glæsilegan Tourismo

Hinn glæsilegi 57 sæta hópferðabíll styrkir flota Magic Iceland Travel.

Nú fyrr í sumar afhenti Landfari Magic Iceland Travel þennan glæsilega Toursomo 17 RHD hópferðabíl.

Bíllinn er sérlega rúmgóður, með 57 farþegasæti og vel búinn öllum þeim þægindum sem gera ferðalagið ánægjulegt fyrir bæði farþega og ökumann. Auk þess er hann búinn fullkomnum öryggis- og aðstoðarkerfum frá Daimler Buses sem stuðla að auknu öryggi á vegum landsins.

Eins og sjá má á myndunum er bíllinn einstaklega glæsilegur, setur sterkan svip á flota Magic Iceland Travel og og sker sig vel úr flota hópferðabíla hér á landi.

Við hjá Landfara óskum Magic Iceland Travel innilega til hamingju með þennan fallega og öfluga farkost og þökkum fyrir traustið. Við hlökkum til að sjá hann á ferð um landið með ánægða farþega innanborðs.