25. nóv. 2026

Fyrsta sýn á nýja kynslóð Mercedes-Benz eCitaro

Nýr eCitaro er hluti af heildarlausnum Daimler Buses á sviði rafvæðingar.

Ný kynslóð Mercedes-Benz eCitaro er hönnuð frá grunni sem rafmagnsvagn. Nýr undirvagn og nútímaleg tækni stuðla að betri orkunýtingu, minni eigin þyngd og auknum sveigjanleika í rekstri almenningssamgangna.

Háþróuð rafhlöðutækni

Nýr eCitaro verður búinn LFP-rafhlöðum sem einkennast af langri endingu og miklu rekstraröryggi. Hver rafhlöðueining hefur um 50 kWh orkugetu og er hægt að aðlaga fjölda eininga að stærð vagnsins og drægniþörf.

Rafhlöðugeta verður allt að 600 kWh í hefðbundnum strætisvögnum og allt að 700 kWh í liðvögnum. Boðið verður upp á fjölbreyttar hleðslulausnir, meðal annars CCS2-hleðslutengi og hleðslubúnað á þaki, með allt að 450 kW hleðsluafli.

Skilvirkt drifkerfi fyrir akstur innan og utan þéttbýlis

Vagnar fyrir innanbæjarakstur verða búnir nýjum ZF AxTrax 2 LF rafdrifnum afturöxli með allt að 360 kW afli. Nýtt MMTI-stýrikerfi stuðlar jafnframt að betri orkunýtingu og aukinni endurheimt hemlunarorku.

Fyrir lengri akstursleiðir verður boðið upp á útfærslu með miðlægum rafmótor og Mercedes-Benz RO 440 afturöxli. Sú útfærsla nær allt að 100 km/klst. hraða og hentar því vel til aksturs milli þéttbýliskjarna.

Léttari, öruggari og þægilegri

Með nýjum undirvagni, sem er sérstaklega þróaður fyrir rafmagnsvagna, hefur eigin þyngd liðvagnsins verið minnkuð um 750 kg. Nýja kynslóðin nær yfir vagna frá 10,63 til 18,13 metra að lengd, bæði fyrir innanbæjarakstur og lengri leiðir.

Háþróuð akstursaðstoðarkerfi, þar á meðal Preventive Brake Assist 2, Sideguard Assist 2 og Frontguard Assist, styðja við ökumenn í daglegum akstri. Lágt gólf og endurbætt hitastýring auka jafnframt þægindi farþega.

Heildarlausnir fyrir rafvæðingu almenningssamgangna

Nýr Mercedes-Benz eCitaro er hluti af heildarlausnum Daimler Buses á sviði rafvæðingar. Auk vagnanna sjálfra er boðið upp á ráðgjöf um rekstur bílaflota, hleðsluinnviði, stafrænar lausnir og verkstæðisþjónustu á vegum OMNIplus og OMNIplus Charge.

Væntanlegur á markað árið 2028

Stefnt er að því að ný kynslóð Mercedes-Benz eCitaro komi á markað árið 2028. Með nýjum undirvagni og endurbættri tækni leggur Daimler Buses grunninn að næstu kynslóð rafknúinna almenningssamgangna.

Ef þú hefur áhuga á að kynna þér nýjan Mercedes-Benz eCitaro nánar hafðu þá samband við okkur hjá Landfara, við veitum þér fúslega frekari upplýsingar.

Kynntu þér eCitaro nánar hér