Nú á dögunum komu þeir bræður, Andri og Magnús, til okkar hjá Landfara til að taka við nýjum hópferðabíl fyrir fyrirtæki sitt, Vestfirskar ævintýraferðir.
Um er að ræða 51 farþega hópferðabíl sem byggður er af samstarfsaðila okkar MOBI People í Portúgal á Mercedes-Benz Arocs 1846 undirvagni með vökvaframdrifi. Bíllinn er sérstaklega hannaður með íslenskar aðstæður í huga og hentar jafnt í hálendisferðir sem og krefjandi vetraraðstæður.


