20. maí 2026

Olíudreifing fær nýjan Mercedes-Benz Actros dráttarbíl

Bíllinn er 580 hestöfl, vel búinn til aksturs við krefjandi aðstæður og er jafnframt fyrsti speglalausi ADR bíllinn í flota Olíudreifingar.

Olíudreifing fær afhentan Mercedes-Benz Actros dráttarbíl - á ferðinni

Á dögunum fékk Olíudreifing afhentan Mercedes-Benz Actros dráttarbíl sem mun þjónusta eldsneytisafgreiðslur á Suðurlandi.

Það var sjálfur Heimir Hoffritz sem mætti í eigin persónu og fékk bílinn afhentan í síðustu viku, keyrði fyrstu 1000 kílómetrana um helgina og lætur vel af bílnum, en hann mun verða bílstjóri á þessum bíl ásamt Antoni K Þorsteinsssyni.

Bíllinn er mjög vel búinn með 580hp vél, afar vel búnu ökumannshúsi og fyrsti ADR bíllinn hjá ODR sem er speglalaus.

Landfari óskar Olíudreifingu og bílstjórunum kærlega til hamingju með nýja bílinn og óskar þeim góðs gengis með hann. Enginn sexkantur með þessum þó!

Skoða nýjan Actros
Olíudreifing fær afhentan Mercedes-Benz Actros dráttarbíl
Olíudreifing fær afhentan Mercedes-Benz Actros dráttarbíl
Myndirnar fengum við hjá Heimi en hann er annálaður ljósmyndari og rekur glæsilegan ljósmyndavef með myndum af Suðurlandi á slóðinni www.heimirhoffritz.net