Laugardaginn 6. júní frá kl. 12:00–16:00 verður Landfari með opið hús í Desjamýri 10.
Gestir fá tækifæri til að reynsluaka vörubílum frá Mercedes-Benz Trucks*, kynna sér þjónustu Landfara og upplifa nýjustu lausnir frá Mercedes-Benz Trucks.
Í tilefni af 130 ára afmæli Mercedes-Benz Trucks býður Landfari viðskiptavinum, vörubílstjórum og áhugasömum að kíkja við í Desjamýri laugardaginn 6. júní.
Gestir geta meðal annars reynsluekið vörubílum frá Mercedes-Benz, þar á meðal rafmagnsvörubílnum eActros, og auk þess Actros og Arocs vöru- og dráttarbílum, kynnt sér stafrænar lausnir frá Mercedes-Benz, ásamt því að kynna sér þjónustu Landfara, aðstöðu verkstæðisins og lausnir fyrir íslenskan atvinnurekstur.
Reynsluaktu og þú gætir unnið 100.000 kr. ferðavinning!
Allir sem taka þátt í reynsluakstri á viðburðinum fara sjálfkrafa í pott þar sem dreginn verður út 100.000 kr. ferðavinningur.
