14. júlí 2026

Tvær nýjar Tourismo bætast í flota Snælands Grímssonar

Tvær nýjar bifreiðar marka enn einn áfangann í farsælu samstarfi við Landfara.

Fyrir skömmu afhentum við hjá Landfara okkar traustu viðskiptavinum hjá Snæland Grímssyni tvo nýja Mercedes-Benz Tourismo hópferðabíla.

Um er að ræða 12 metra langa bíla með 49 farþegasætum. Þetta er sú útgáfa Tourismo sem hefur notið mestra vinsælda hér á landi og hefur reynst eigendum sínum einstaklega vel í íslenskri ferðaþjónustu.

Báðir bílarnir eru útbúnir myndavélaspeglum sem hafa fengið afar jákvæðar viðtökur meðal ökumanna. Eigendur og bílstjórar hjá Snælandi eru mjög ánægðir með þessa tækni sem eykur bæði öryggi og akstursþægindi.

Snæland Grímsson hefur um árabil treyst á gæði Mercedes-Benz og Daimler Buses, og er floti fyrirtækisins af stórum hópferðabílum nú alfarið frá framleiðandanum. Með þessum tveimur nýju Tourismo bílum telur flotinn nú 18 Mercedes-Benz Tourismo hópferðabíla.

Við hjá Landfara þökkum Snælandi Grímssyni fyrir áframhaldandi traust og óskum þeim innilega til hamingju með þessa glæsilegu viðbót við flotann.